Fjarðarstræti 57, Ísafjörður
41.900.000 Kr.
Fjölbýlishús
4 herb.
115 m2
41.900.000
Stofur
2
Herbergi
4
Baðherbergi
1
Svefnherbergi
2
Byggingaár
1961
Brunabótamat
42.850.000
Fasteignamat
29.400.000

Fasteignasala Vestfjarða s. 4563244 - eignir@fsv.is - www.fsv.is - Til sölu - Fjarðarstræti 57 Ísafirði - Íbúð á 1.hæð til vinstri í fjölbýlishúsi - gott aðgengi og staðsetning. Frábært útsýni út á djúpið.
Þriggja til fjögurra herbergja íbúð á 1.hæð í fjölbýlishúsi. Íbúðin er töluvert endurnýjuð. Auðvelt að bæta við þriðja svefnherberginu. Gangur/forstofa, eldhús og búr, rúmgóð stofa og borðstofa, tvö svefnherbergi, baðherbergi og stór geymsla í kjallara, sameiginlegt þvottahús. Húsfélag hefur tekið ákvörðun um að byggja við og loka svölum hússins sem mun bæði stækka og auka notagildi svalanna.


Nánari lýsing:
Sameiginlegur inngangur, stigagangur teppalagður.
Gangur með fatahengi, harðparket á gólfi.
Opið eldhús nýlega endurnýjað (2017), hvít innrétting, spanhelluborð og ofn, pláss fyrir uppþvottavél, korkflísar á gólfi, lítil geymsla/búr með hillum inn af eldhúsi.
Rúmgott hjónaherbergi með stórum nýlegum fataskáp, harðparket á gólfi.
Annað svefnherbergi með dúk á gólfi og fataskáp. 
Baðherbergi, baðkar með sturtu, hvít innrétting, dúkur á gólfi, handklæðaofn. Ný vifta á baði.
Mjög rúmgóð stofa og borðstofa með harðparketi á gólfi, útgengt út á svalir. Hluti af núverandi stofu var áður svefnherbergi og auðvelt að breyta aftur.

Stór geymsla í kjallara, skráð 19,7 m², íbúðin er skráð 95,9 m².
Þvotta, þurrkherbergi og hjólageymsla í sameign.
Snyrtileg sameign og stigagangur, virkt húsfélag.
Húsfélag hefur ákveðað að láta stækka og loka svölum allra íbúða í húsinu, verða þá svalirnar vel nýtanlegar yfir allt árið.

Nánari upplýsingar veitir Guðmundur Óli Tryggvason Lögg. fasteignasali, í síma 4563244 og 8208284, tölvupóstur eignir@fsv.is

Smelltu hér til að panta frítt söluverðmat eða skrá eignina þína!
Smelltu hér til að fylgja okkur á Facebook
Smelltu hér til að fylgja okkur á Instagram


Skoðunar- og aðgæsluskylda:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Við bendum væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga, 0,4% við fyrstu kaup m.v. að lágmarki 50% eignarhlut og 1,6% fyrir lögaðila.
Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.500,- fyrir hvert skjal.
Lántökugjald lánastofnana: vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
Umsýsluþóknun fasteignasölu samkvæmt gjaldskrá.



 




Senda fyrirspurn vegna

Fjarðarstræti 57

Guðmundur Óli Tryggvason
Löggiltur fasteignasali