Fasteignasala Vestfjarða s. 4563244 - eignir@fsv.is - www.fsv.is - kynnir til sölu - Höfðastígur 20 Bolungarvík - Stórglæsileg og endurnýjuð rúmgóð fjögurra herbergja íbúð á efri hæð í tvíbýlishúsi ásamt bílskúr, frábært útsýni yfir víkina! Íbúðin sjálf er skráð 119 m² með stigagangi og bílskúr er skráður 32,3 m² Samtals 151,3 m² að stærð.
Íbúðin var öll endurnýjuð að innanverðu árið 2021, allar lagnir endurnýjaðar, einnig var skipt um glugga og sett nýtt þakjárn á bílskúr, þakjárn á húsi var búið að endurnýja áður.
Skipulag: Sér inngangur og stigagangur upp á efri hæð, forstofa, gangur, rúmgóð stofa, opið rúmgott eldhús, þvottahús, baðherbergi og þrjú svefnherbergi.
Ath. að innbú getur fylgt með í kaupum!
Nánari lýsing:
Sér inngangur, gangur með flísum á gólfi og stigi upp á efri hæð.
Forstofugangur á efri hæð. Ljósar flísar 60x60 cm á öllum gólfum og hiti í gólfum.
Eldhús með fallegri dökkri innréttingu og eyju frá Fríform, helluborð, ofn, örbylgjuofn og uppþvottavél frá AEG.
Þvottahús inn af eldhús, góð innrétting frá Fríform fyrir þvottavél og þurrkara, skápar og vaskur.
Rúmgóð stofa og borðstofa með góðu útsýni, útgengt út á svalir úr stofu.
Stórt hjónaherbergi með dökkum fataskáp frá Fríform.
Tvö önnur svefnherbergi án fataskápa
Baðherbergi með fallegum flísum á veggjum, walk-in sturta, upphengt salerni og falleg baðinnrétting og blöndunartæki frá Lusso Stone.
Bílskúr með steyptu gólfi, hvít rúlluhurð með rafstýrðum opnaraog ný inngönguhurð bakatil. Sér bílastæði fyrir framan bílskúr (malarborið).
Sameiginlegur garður. Í sameign er stigagangur niður í kjallara og kyndiklefi í kjallara.
Nánari upplýsingar og skoðunartíma veitir Guðmundur Óli Tryggvason Lögg. fasteignasali, í síma 4563244 og 8208284, tölvupóstur eignir@fsv.is
Smelltu hér til að panta frítt söluverðmat eða skrá eignina þína!
Smelltu hér til að fylgja okkur á Facebook
Smelltu hér til að fylgja okkur á Instagram
Skoðunar- og aðgæsluskylda:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Við bendum væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.
Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga, 0,4% við fyrstu kaup m.v. að lágmarki 50% eignarhlut og 1,6% fyrir lögaðila.
Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.500,- fyrir hvert skjal.
Lántökugjald lánastofnana: vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
Umsýsluþóknun fasteignasölu samkvæmt gjaldskrá.