Fasteignasala Vestfjarða s. 4563244 - eignir@fsv.is - www.fsv.is- kynnir til sölu - Lyngholt 1 Ísafirði, fallegt og vel staðsett einbýli með stórum bílskúr í Holtahverfinu. Í húsinu eru fjögur svefnherbergi, tvær stofur, eldhús, þvottahús, forstofa, baðherbergi og salerni. Fallegur og stór garður með sólpalli og heitum potti, stórt steypt bílastæði fyrir framan bílskúr. Húsið er á góðum stað við forgangsgötu í snjómokstri og mjög stutt í strætóstopp. Íbúðarhluti telst vera 147 m² og bílskúr 44,2 m² að stærð, samtals 191,2 m².
Nánari lýsing:
Forstofa með flísum á gólfi og ágætum fataskáp.
Uppgert salerni inn af forstofu, flísar á gólfi og veggjum, dökk innrétting.
Svefnherbergi inn af forstofu með nýlegu harðparketi á gólfi.
Gangur með parketi á gólfi.
Mjög rúmgóð og björt stofa og borðstofa með parketi á gólfi, úr stofu er útgengt út á sólpall þar sem er heitur pottur sem getur fylgt með í kaupum skv. nánara samkomulagi. Falleg viðarkamína í stofu.
Eldhús með hvítlakkaðri innréttingu, parket á gólfi. þar, eldavél, tengi fyrir uppþvottavél og góður borðkrókur.
Þvottahús með steyptu gólfi, hillur, sér útgangur út í garð. Lítil geymsla/búr inn af þvottahúsi, hægt að nýta sem vinnuaðstöðu líka.
Baðherbergi endurnýjað 2019, baðkar með sturtu, flísar á gólfi og veggjum, innrétting, upphengt salerni og handklæðaofn, gólfhiti.
Stórt svefnherbergi með nýlegum stórum fataskáp og harðparketi á gólfi.
Tvö önnur svefnherbergi með nýlegu harðparketi á gólfum.
Bílskúr með steyptu gólfi, inngönguhurð, bílskúrshurðhurð úr timbri með rafstýrðum opnara, 3ja fasa rafmagn og ný rafmagnstafla.
Stórt steypt bílaplan fyrir framan bílskúr og timburpallur að framanverðu.
Nýlegar framkvæmdir skv. seljendum:
Gler endurnýjað 2018. Baðherbergi endurnýjað 2019. Salerni endurnýjað 2020. Bílaplan 2020. Rafmagn í skúr, tafla 3 fasa 2021.
Nánari upplýsingar og skoðunartíma veitir Guðmundur Óli Tryggvason Lögg. fasteignasali, í síma 4563244 og 8208284, tölvupóstur eignir@fsv.is
Smelltu hér til að panta frítt söluverðmat eða skrá eignina þína!
Smelltu hér til að fylgja okkur á Facebook
Smelltu hér til að fylgja okkur á Instagram
Skoðunar- og aðgæsluskylda:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Við bendum væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.
Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga, 0,4% við fyrstu kaup m.v. að lágmarki 50% eignarhlut og 1,6% fyrir lögaðila.
Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.700,- fyrir hvert skjal.
Lántökugjald lánastofnana: vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
Umsýsluþóknun fasteignasölu samkvæmt gjaldskrá.