Ránargata 2, Flateyri
42.900.000 Kr.
Einbýlishús
8 herb.
220 m2
42.900.000
Stofur
1
Herbergi
8
Baðherbergi
3
Svefnherbergi
5
Byggingaár
1913
Brunabótamat
81.650.000
Fasteignamat
21.350.000

Fasteignasala Vestfjarða s. 4563244 - eignir@fsv.is - www.fsv.is- kynnir til sölu -  Ránargata 2 Flateyri -  Stórt og fallegt einbýlishús á tveimur hæðum auk kjallara. Í húsinu eru fimm svefnherbergi, stofa, eldhús, þrjú baðherbergi og forstofa, gott geymslupláss í kjallara. Húsið hefur verið rekið sem gistihús síðastliðin ár og er möguleiki á að kaupa hluta innbús til reksturs með eigninni. 

Jarðhæð:

Aðalinngangur í viðbyggingu frá 2002, rúmgóð forstofa með flísum og hita í gólfi. 
Baðherbergi inn af af forstofu, góð innrétting, sturtuklefi, flísar á gólfi og hiti í gólfi.
Gangur/hol með plastparketi á gólfi.
Eldhús með hvítri innréttingu, parket á gólfi, helluborð og ofn, tengi fyrir uppþvottavél.
Stofa og borðstofa með parketi á gólfi. 
Eitt rúmgott svefnherbergi inn af stofu með sér baðherbergi með sturtu.

Efri hæð/Rishæð:
Tréstigi á milli hæða.
Stigapallur með plastparketi á gólfi
Salerni með ágætri innréttingu, gert er ráð fyrir sturtu sem á eftir að setja upp.
Fjögur rúmgóð svefnherbergi eru á hæðinni, öll með parketi á gólfum.

Kjallari:
Kjallari er rúmgóður, skráður 71 m², þar er gott geymslupláss og vinnupláss, mögulegt að útbúa þar gott þvottahús.

Ágætur garður og sólpallur fyrir framan húsið. Hellulögð stétt og bílastæði.
Seljendur hafa látið teikna upp garðskála út af eldhúsi og getur sú teikning fylgt með í kaupum eignar.

Framkvæmdir að sögn seljenda. 
Búið að skipta um 2 glugga á rishæð, einn gluggi til í viðbót óuppsettur og getur fylgt með.
Húsið var einangrað og klætt að utan með steini árið 2002, kyndikostnaður er því frekar lítill. 
Árið 2002 var einnig drenlagt í kringum húsið. 
Þak var endurnýjað í kringum 2001. 
Vatnslagnir eru nýlegar

Nánari upplýsingar og skoðunartíma veitir Guðmundur Óli Tryggvason Lögg. fasteignasali, í síma 4563244 og 8208284, tölvupóstur 
eignir@fsv.is

Smelltu hér til að panta frítt söluverðmat eða skrá eignina þína!
Smelltu hér til að fylgja okkur á Facebook
Smelltu hér til að fylgja okkur á Instagram


Skoðunar- og aðgæsluskylda:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Við bendum væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga, 0,4% við fyrstu kaup m.v. að lágmarki 50% eignarhlut og 1,6% fyrir lögaðila.
Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.500,- fyrir hvert skjal.
Lántökugjald lánastofnana: vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
Umsýsluþóknun fasteignasölu samkvæmt gjaldskrá.
 




Senda fyrirspurn vegna

Ránargata 2

Guðmundur Óli Tryggvason
Löggiltur fasteignasali