Fasteignasala Vestfjarða s. 4563244 - eignir@fsv.is - www.fsv.is- kynnir til sölu - Krókur 3 Ísafirði - Mikið endurnýjað einbýli á tveimur hæðum með 23 fm bílgeymslu á neðri hæð.
Á efri hæð er forstofa, baðherbergi, stofa og eldhús, hol og tvö svefnherbergi. Á neðri hæð er eitt svefnherbergi, hol/vinnurými, stórt baðherbergi/þvottahús og bílgeymsla.
Nánari lýsing:
Inngangur á efri hæð, þar er forstofa með flísum á gólfi og hita í gólfi.
Baðherbergi með sturtu, ný innrétting, flísar á gólfi og hiti í gólfi.
Stofa með harðparketi á gólfi, hiti í gólfi. Opið eldhús með nýrri innréttingu.
Hol með útgangi út í bakgarð.
Tvö svefnherbergi á hæðinni annað með harðparket á gólfi hitt dúk.
Gott risloft yfir hæðinni, hleri og stigi í forstofu.
Nýr stigi úr holi niður á neðri hæð. Lofthæð er minni á neðri hæð.
Ágætt hol sem nýtist sem tölvurými og fataherbergi.
Svefnherbergi með harðparketi á gólfi.
Rúmgott baðherbergi/þvottaherbergi með baðkari, innréttingu og upphengdu klósetti, góð þvottaaðstaða.
Innangengt inn í 23 m ² bílskúr með vinnuborði og vaski, steypt gólf, hvít bílskúrshurð.
Gluggar að neðanverðu endurnýjaðir 2018.
Drenað kringum hús, klætt með takkadúk og steyptur sökkull við hluta hússins 2020.
Ofnar, ofnalagnir og vatnslagnir endurnýjaðar 2020.
Frárennsli endurnyjað og settur brunnur 2019
Baðherbergi á efri hæð endurnyjað 2016 og á neðri hæð 2019. Eldhús fært og endurnýjað 2021.
2021 - Þakjárn endurnýjað að hluta á húsinu.
Nánari upplýsingar veitir Guðmundur Óli Tryggvason Lögg. fasteignasali, í síma 4563244 og 8208284, tölvupóstur eignir@fsv.is
Smelltu hér til að panta frítt söluverðmat eða skrá eignina þína!
Smelltu hér til að fylgja okkur á Facebook
Smelltu hér til að fylgja okkur á Instagram
Skoðunar- og aðgæsluskylda:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Við bendum væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.
Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga, 0,4% við fyrstu kaup m.v. að lágmarki 50% eignarhlut og 1,6% fyrir lögaðila.
Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.500,- fyrir hvert skjal.
Lántökugjald lánastofnana: vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
Umsýsluþóknun fasteignasölu samkvæmt gjaldskrá.