Stórholt , Ísafjörður
35.000.000 Kr.
Fjölbýlishús
3 herb.
94 m2
35.000.000
Stofur
1
Herbergi
3
Baðherbergi
1
Svefnherbergi
2
Byggingaár
1977
Brunabótamat
37.700.000
Fasteignamat
20.200.000

Fasteignasala Vestfjarða s. 4563244 - eignir@fsv.is - www.fsv.is- kynnir til sölu - Stórholt 11 ibúð 0302 Ísafirði - Mjög góð þriggja herbergja íbúð á þriðju hæð auk bílskúrs.
Á árinu 2022 voru veggir hússins einangraðir og klæddir með álklæðningu, allir gluggar endurnýjaðir og skipt um svalahurðir, útihurð og þakkantur einnig endurnýjaður.
Tvö svefnherbergi, uppgert baðherbergi, eldhús og rúmgóð stofa með svölum, á jarðhæð er sérgeymsla og bílskúr, sameiginlegt þvottahús og hjóla/vagnageymsla. 


Komið inn í forstofugang, laus fataskápur fylgir.
Ágæt stofa og borðstofa er með harðparketi á gólfi og þaðan er útgengt á suðursvalir.
Svefnherbergin tvö eru með dúk á gólfum, stór fataskápur í hjónaherbergi.
Eldhúsið er með dúk á gólfi, innrétting með góðu skápaplássi, eldavél og háfur.
Baðherbergi endurnýjað, "walk-in" sturta, innrétting og skápar, flísar á gólfi og veggjum, upphengt salerni.

Á jarðhæð er 20,8 m² bílskúr með steyptu gólfi, rafstýrður hurðaopnari, einnig er þar sér 7,4 m² geymsla.
Íbúðin sjálf er skráð 65,9 m² að stærð, samtals 94,1 m².
Í sameign á jarðhæð er sameiginlegt þvottahús og hjóla/vagna/skógeymsla.
Malbikað bílastæði fyrir framan húsið og sameiginlegur garður að aftanverðu.

Nánari upplýsingar og skoðunartíma veitir Guðmundur Óli Tryggvason Lögg. fasteignasali, í síma 4563244 og 8208284, tölvupóstur eignir@fsv.is

Smelltu hér til að panta frítt söluverðmat eða skrá eignina þína!
Smelltu hér til að fylgja okkur á Facebook
Smelltu hér til að fylgja okkur á Instagram


Skoðunar- og aðgæsluskylda:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Við bendum væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga, 0,4% við fyrstu kaup m.v. að lágmarki 50% eignarhlut og 1,6% fyrir lögaðila.
Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.700,- fyrir hvert skjal.
Lántökugjald lánastofnana: vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
Umsýsluþóknun fasteignasölu samkvæmt gjaldskrá.




Senda fyrirspurn vegna

Stórholt

Guðmundur Óli Tryggvason
Löggiltur fasteignasali